Amaroq tvöfaldar lánasamning í USD 70 milljónir
Reykjavík, April 30, 2026 (GLOBE NEWSWIRE) -- Amaroq Ltd.
Amaroq tvöfaldar lánasamning í USD 70 milljónir
Amaroq Ltd. (AIM, NASDAQ Iceland: AMRQ, OTCQX: AMRQF) tilkynnir að félagið hefur undirritað lánasamning (e. Revolving Credit Facility, RCF) við Landsbankann og Gunvor Group („Gunvor“). Hinn nýi samningur kemur í stað núverandi lánasamnings félagsins við Landsbankann að fjárhæð USD 35 milljóna og tvöfaldar lánsheimild félagsins í USD 70 milljónir, ásamt því að lækka fjármögnunarkostnað. Samhliða samningnum mun Gunvor, einn stærsti hrávörumiðlari heims, kaupa gullframleiðslu frá Nalunaq-námunni.
Helstu skilmálar
- Nýi lánasamningurinn kemur í stað núverandi USD 35 milljóna lánasamnings og hækkar heildar lánsheimild í USD 70 milljónir, sem eykur fjárhagslegan sveigjanleika, lengir lánstíma og lækkar fjármögnunarkostnað.
- Vaxtakjör taka mið af SOFR að viðbættu vaxtaálagi.
- Vaxtaálag: Upphaflega 7.50% yfir SOFR sem fer stiglækkandi eftir EBITDA síðustu 12 mánaða (LTM):
- 6.25% þegar LTM EBITDA fer yfir CAD 25 milljónir,
- 5.00% þegar LTM EBITDA fer yfir CAD 50 milljónir,
- .50% þegar LTM EBITDA fer yfir CAD 70 milljónir.
- Lokagjalddagi lánasamningsins er 1. maí 2028.
Lánasamningurinn ber upphafs- og breytingargjald sem nemur 0,55% af heildarskuldbindingu (USD 385.000). Veðtryggingar lánasamningsins haldast óbreyttar frá fyrri samningi og samanstanda af veðsetningu fasteigna og rekstrarbúnaðar, hlutabréfa í dótturfélögum, bankareikninga og leyfissamninga.
Félagið getur dregið á lánasamninginn á lánstímanum til almennra rekstrarþarfa, að uppfylltum hefðbundnum skilyrðum og áframhaldandi uppfyllingu fjárhagslegra skilmála.
Ellert Arnarson, fjármálastjóri Amaroq:
„Við erum afar ánægð með að hafa undirritað nýjan lánasamning við Landsbankann og Gunvor, sem tvöfaldar lánalínu félagsins í USD 70 milljónir. Með samningnum lækkar fjármögnunarkostnaður félagsins, lausafjárstaða styrkist og lánstíminn lengist til maí 2028. Þá styrkir samningurinn veltufé félagsins verulega nú þegar við hefjum rannsóknarverkefni ársins og ljúkum framkvæmdum og gangsetningu á öðrum áfanga vinnslustöðvarinnar í Nalunaq, samhliða vaxandi sjóðstreymi frá gullframleiðslu.“
Morgan Holmes, Gunvor Metals:
„Við hjá Gunvor erum gífurlega ánægð með að hefja samstarf við Amaroq og styðja við aukna framleiðslu og sölu gulls frá Nalunaq-námunni á Grænlandi. Við erum jafnframt spennt og vel í stakk búin til að styðja við áframhaldandi uppbyggingu og vaxtaráform félagsins á sviði málma og námuvinnslu.“
Árni Þór Þorbjörnsson, Framkvæmdastjóri Fyrirtækjasviðs Landsbankans:
„Landsbankinn hefur stutt Amaroq og tekið þátt í uppbyggingu Nalunaq verkefnisins frá fyrstu stigum og höfum við fylgst náið með framvindu þess í átt að framleiðslu.
Stækkun lánasamningsins endurspeglar bæði þann árangur sem þegar hefur náðst og umfang þeirra tækifæra sem fram undan eru. Aðkoma Gunvor að fjármögnuninni styrkir stoðir hennar enn frekar og styður við áframhaldandi vöxt félagsins.
Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs við Amaroq á næstu stigum verkefnisins.“
Fyrirspurnir:
Enquiries:
Amaroq Ltd. C/O
Ed Westropp, Chief Corporate Development and Strategy Officer
+44 (0)7385 755711
ewe@amaroqminerals.com
Panmure Liberum Limited (Nominated Adviser and Corporate Broker)
Scott Mathieson
Freddie Wooding
+44 (0) 20 7886 2500
Canaccord Genuity Limited (Corporate Broker)
James Asensio
Harry Rees
+44 (0) 20 7523 8000
Citigroup Global Markets (Sponsor)
Andrew Miller-Jones
David Herring
+44 (0) 207 986 3463
Camarco (Financial PR)
Billy Clegg
Elfie Kent
Fergus Young
+44 (0) 20 3757 4980
Further Information:
About Amaroq
Amaroq’s principal business objectives are the identification, acquisition, exploration, and development of gold and strategic metal properties in South Greenland. The Company’s principal asset is a 100% interest in the Nalunaq Gold mine. The Company has a portfolio of gold and strategic metal assets in Southern Greenland covering the two known gold belts in the region as well as advanced exploration projects at Stendalen and the Sava Copper Belt exploring for strategic metals such as Copper, Nickel, Rare Earths and other minerals. Amaroq is continued under the Business Corporations Act (Ontario) and wholly owns Nalunaq A/S, incorporated under the Greenland Companies Act.
Inside Information
This announcement does not contain inside information.
Legal Disclaimer:
EIN Presswire provides this news content "as is" without warranty of any kind. We do not accept any responsibility or liability for the accuracy, content, images, videos, licenses, completeness, legality, or reliability of the information contained in this article. If you have any complaints or copyright issues related to this article, kindly contact the author above.